31.01.2012 17:00
Feðgar í sleðaferð.
Gummi Sig og Siggi Árna ( Feðgar ) skelltu sér í smá sleðarúnt í sólinni í dag.
Þegar lagt var af stað upp á Fjarðarheiði voru vindmælar að smella í 20 metra í kviðum.
Fljótlegar lægði nú vind og í Gilsárdalnum small allt saman. Færið, lítill vindur og brakandi sól.
Gilið ofarlega í Gilsárdalnum klikkar sjaldan og var mikið leikið sér þar í brekkunum.
Kíktum svo eftir það í Vestdalinn en þar var frekar þungt færi.
Magnaður 3kls rúntur sem var vel þess virði.
Myndaalbúm af ferðinni.
Skrifað af GummiSig
27.01.2012 22:08
Sleðast á Smjörvatnsheiðinni.
Þá er mögnuð sleðaferð að baki hjá Snjólf.
Fimm meðlimir ( GummiSig, Ingólfur, Hörður, Alli Hjörtur og Eiríkur ) fóru á Smjörvatnsheiðina
og kíktu við í símakofann til að hita sér kaffi og með því.
Það kom fljótt í ljós að það var ekki öruggt að fara í miklar brekkur þar sem þurr snjór lá
mjög laust ofan á glæru og fóru tvö lítil flekaflóð af stað þegar brekkurnar voru skornar og var
seinna flóðið aðeins stærra.
Smá bið var í byrjun eftir Ingólfi þar sem kallinn svaf yfir sig og villtist svo á Jökuldalnum.
En honum var nú fljótt fyrirgefið og skemmtu allir sér vel í ferðinni.
Myndaalbúm úr ferðinni.
Þangað til næst. :))
Skrifað af GummiSig
26.01.2012 21:20
Sleðaferð !!
Sleðaferð á morgun 27 janúar ekki seinna en kl 10:00
Verðum í bandi kl 9:00 til að koma okkur saman um staðsetningu eftir því
hvar besta veðrið verður. ( Ætti að verða nokkuð bjart fram yfir hádegi )
Allir að mæta með öryggisbúnaðinn sinn ( Hjálmur, brynja og snjóflóðaýla )
Ætti ekki að þurfa aukabensín með í för.
Skrifað af GummiSig
12.01.2012 20:27
Skreppitúr upp á Gagnheiði
Nokkrir félagarnir úr Snjólf kíktu í smá skreppitúr upp á Gagnheiði til að kanna færi og
færni sína. Færið var ágætt en í harðari kantinum á köflum og færnin pottþétt að sjálfsögðu.
Að þessu sinni voru það Ingólfur, Hörður, Guðjón og Pétur Steinn sem mættu á heiðina.
Eins og sést á myndum þá var veðrið glæsilegt þegar leið á daginn og ekki
annað hægt en skemmta sér þennan daginn.
Ingólfur ( Veltir ) endaði svo ferðina á því að skemma glerið á sleðanum í veltu og stendur
kallinn vel undur nafni. Hörður virtist skemmti sér konunglega yfir þessu við mikla
ánægju frá Ingólfi. :)
Myndaalbúm úr ferðinni.
Skrifað af GummiSig
09.01.2012 22:15
Hötturinn í smá vindhviðum.
Skemmtilegur renningur að baki upp frá Mjóafjarðarafleggjara upp á Höttinn.
Með í för voru miklir gæðingar eins og venjulega.
Framkvæmdarstjóri, Öldungur, Veltir, Brjótur og Kúrva skemmtu sér fyrir allann peninginn
þar sem búist var við hörðu færi sem reyndist svo ekki vera þegar ofar var komið.
Nokkrar vindhviður skóku félagana sem létu þær ekkert trufla sig og
léku á alls oddi á hinum og þessum leiksvæðunum.
Myndaalbúm af ferðinni.
Skrifað af GummiSig
04.01.2012 20:02
Gleðilegt nýtt ár Snjólfarar.
Gleðilegt nýtt ár félagar.
Nú á nýju ári eru nýjir og spennandi tímar framundan með hækkandi sól og fullt af snjó.
Eins og góður félagi sagði um árið þegar hann var staddur vel upp á Vatnajökli.
" Leit í kring um sig og sagði þessi frægu orð. Hér er bara allt á kafi í snjó "
Núna eru flestir félagsmenn að klára að græja réttan öryggisbúnað fyrir sig og vonandi
klárast það sem fyrst. Bera er að geta að það vantar enn tvo sem ætla að taka snjóflóðaýla
til þess að verðin sem um var samið við fjallakofann standist.
Um að gera að skoða það vel til þess að við missum ekki af þessu tilboði.
Endilega rennið yfir öryggismálin hjá www.liv.is sem má finna hér að neðan. Góðir punktar.
http://www.liv.is/page/oryggismal
Verið svo dugleg að taka myndir ef þið farið í góðar ferðir og komið þeim til mín svo að aðrir
njóti dýrðarinnar líka.
Skrifað af GummiSig
30.12.2011 19:55
Áramótin eru að koma !!
Nú styttist í áramótin með öllu sem því fylgir.
Munum nú að styrkja björgunarsveitirnar vel þetta árið. Við vitum aldrei hvort við þurfum þeirra
aðstoð í vetur, þó að sjálfsögðu vonum við að árið 2012 verði algjörlega slysalaust.
Mæli með að þið rennið yfir þennann texta á Landsamband Íslenskra vélsleðamanna.
http://liv.is/page/oryggismal
Við ætlum líka að taka öryggismálin föstum tökum frá og með áramótum.
Staðalbúnaður í ferðir Snjólfsmeðlima er:
Mæli með að þið rennið yfir þennann texta á Landsamband Íslenskra vélsleðamanna.
http://liv.is/page/oryggismal
Við ætlum líka að taka öryggismálin föstum tökum frá og með áramótum.
Staðalbúnaður í ferðir Snjólfsmeðlima er:
Vélsleði, hjálmur, brynja, snjóflóðaýlir. Einnig er gott að vera með skóflu og stöng.
Við erum komin með flott tilboð frá www.fjallakofinn.is í snjóflóðaýlir ef við tökum fimm eða fleiri.
Við fáum þetta ekki ódýrara.
Látið vita hér að neðan eða bjalla í GummaSig ef þig vantar ýlir.
Ingólfur er í bænum og ætlar að grípa þetta með sér austur eftir áramót.
Skrifað af GummiSig
- 1